عدسة مكبرة
بحث محمل

Víctor Hugo 
Vesalingarnir I 

الدعم
Jean Valjean er staðráðinn í að snúa baki við glæpsamlegri fortíð sinni og verða að heiðarlegum manni. Eftir margra ára fangelsisvist og eymd tekst honum að skapa sér nafn sem auðugur verksmiðjueigandi og borgarstjóri. Á sama tíma fer lífið ekki ljúfum höndum um hina ungu Fatine sem eignast dóttur utan hjónabands og þarf í kjölfarið að færa fórnir sem ræna hana stoltinu og lífsgæðunum. Vesalingarnir er í senn átakanleg og hjartnæm saga sem lýsir mikilvægi samkenndar og kærleika þegar móti blæs. Bókaserían Vesalingarnir kom fyrst út árið 1862 og naut umsvifalaust mikilla vinsælda. Bókin hefur verið þýdd á fjölda tungumála og er talin ein áhrifamesta skáldsaga sem gefin hefur verið út í Evrópu. Sagan gerist á fyrrihluta 19. aldar í Frakklandi þegar miklar hræringar eiga sér stað í samfélaginu. Þar fléttast líf ólíkra einstaklinga saman í örlagaríka atburðarás þrunginnar ástríðu, áræðis, og þrautseigju. Eftir skáldsögunni hafa verið gerðar fjölmargar kvikmyndir en árið 2012 fóru Hugh Jackman, Anne Hathaway og Russel Crowe með aðalhlutverk í eftirgerð Vesalingana undir leikstjórn Tom Hoopers.
€8.99
طرق الدفع

عن المؤلف

Victor Hugo (1802-1885) var franskur skáldsagna-, ljóða- og leikritahöfundur. Hann er talinn einn fremsti og áhrifamesti rithöfundur Frakklands en Vesalingarnir og Hringjarinn í Notre Dame eru meðal þekktustu skáldsagna hans. Ásamt því að vera einn af máttarstólpum rómantísku stefnunnar á 19. öld var Hugo einnig mikill mannréttindasinni og endurspeglast þau viðhorf í mörgum verka hans. Fjöldi bóka Hugos hefur verið endurgerður í formi sviðsverka og kvikmynda.
لغة أيسلندي ● شكل EPUB ● صفحات 304 ● ISBN 9788728449158 ● حجم الملف 0.6 MB ● مترجم Einar H. Kvaran & Ragnar E. Kvaran ● الناشر SAGA Egmont ● مدينة Copenhagen ● بلد DK ● نشرت 2023 ● للتحميل 24 الشهور ● دقة EUR ● هوية شخصية 8765750 ● حماية النسخ DRM الاجتماعية

المزيد من الكتب الإلكترونية من نفس المؤلف (المؤلفين) / محرر

42٬833 كتب إلكترونية في هذه الفئة