Kaca pembesar
Cari Loader

H.C. Andersen 
Litla stúlkan með eldspýturnar 

Dukung
Berfætt og gegnköld reikar lítil stúlka um götur borgarinnar. Alltof stórum skónum tapaði hún við að flýja undan hraðskreiðum vögnum og nú eru fætur hennar, jafnt og hendur, bólgin af kulda. Það eina verk sem henni var falið, að selja eldspýtnabréf, hefur mistekist. Enginn hefur keypt og auralaus þorir hún ekki heim. Í ráðaleysi sínu sest hún skjálfandi niður í húsasundi, og freistast til að kveikja á einni eldspýtu til að orna sér ofurlítið við. Bjarmi þeirra birtir henni þær yndislegustu tálsýnir um hlýju og velsæld sem hún hefur nokkru sinni getað látið sig dreyma um. Eina af annarri lætur hún eldspýturnar blossa, og hver og ein færir henni nýja draummynd. En sú síðasta verður henni afdrifarík. Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.-
€0.99
cara pembayaran

Tentang Penulis

H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. ‘Litla stúlkan með eldspýtunar’ er eitt þeirra sem flest þekkja og hefur, þrátt fyrir nöturlega segðina, verið vinsæl jólasaga og aðlöguð að ýmsum formum. Í sögunni birtast kunnugleg minni Andersens, eins og samúðin með fátæktinni og þá sérstaklega fátæku börnunum. Hungrið og kuldinn nístir gegnum hvert orð og ekki fer hjá því að sá boðskapur sé mikilvægur um jólaleytið, þegar smjör drýpur af hverju kuldastrái velmegunarinnar. rn
Bahasa Islandia ● Format EPUB ● Halaman 5 ● ISBN 9788726237917 ● Ukuran file 0.3 MB ● Usia 17-8 tahun ● Penterjemah Steingrímur Thorsteinsson ● Penerbit SAGA Egmont ● Kota Copenhagen ● Negara DK ● Diterbitkan 2020 ● Diunduh 24 bulan ● Mata uang EUR ● ID 7376304 ● Perlindungan salinan DRM sosial

Ebook lainnya dari penulis yang sama / Editor

4,405 Ebooks dalam kategori ini