Kanta pembesar
Cari Loader

H.C. Andersen 
Tindátinn staðfasti 

Sokongan
Í tindátaöskjunni er einn sem sker sig úr. Sá er tindátinn sem vantar á annan fótinn, sökum þess að tinið var uppurið þegar búið var að steypa bræður hans. Dátinn lætur fótskortinn þó ekki á sig fá og stendur jafn stöðugur og hinir. Saman flytja þeir á nýtt heimili þar sem kennir ýmissra grasa í leikfangaherberginu. Mest af öllu heillast tindátinn þó af fagurri dansmey, sem líkt og hann stendur á öðrum fæti. Hún er þó umtalsvert hærra sett og býr í kastala. Það kemur ekki í veg fyrir að tindátinn unni henni hugástum. Þegar nóttin leggst yfir og heimilisfólkið fer að sofa bregða barnagullin á leik. Það gengur á með dansi og látum, hjá öllum nema tindátanum og dansmeynni. Bæði standa staðföst á sínum eina fæti og horfast á af einbeitni. En tindátinn átti eftir að taka á honum stóra sínum og lenda í ýmsum hremmingum áður en hann fengi að nálgast ástina sína. Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson.-
€0.99
cara bayaran

Mengenai Pengarang

H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. ‘Tindátinn staðfasti’ er ein þeirra sagna Andersens þar sem leikföngin vakna til lífsins, og eiga slíkar sögur enn í dag sér beina leið inn í barnshjörtun. Tindátinn er ekki eins og allir hinir, en lætur það ekki á sig fá og stendur staðfastur á sínu. Sagan hans er falleg frásögn um það, hvernig það að eiga sér takmark og ástríðu getur hjálpað hverjum sem er að takast á við erfiðleika í lífinu. rn
Bahasa Icelandic ● Format EPUB ● Halaman-halaman 6 ● ISBN 9788726237719 ● Saiz fail 0.2 MB ● Umur 17-8 tahun ● Penterjemah Steingrímur Thorsteinsson ● Penerbit SAGA Egmont ● Bandar raya Copenhagen ● Negara DK ● Diterbitkan 2020 ● Muat turun 24 bulan ● Mata wang EUR ● ID 7376297 ● Salin perlindungan Social DRM

Lebih banyak ebook daripada pengarang yang sama / Penyunting

4,409 Ebooks dalam kategori ini