Maríus litli, aðalpersóna sögunnar, er feiminn en uppátækjasamur piltur á skólabekk. Hann er ekki mikill námshestur og er eftirbátur bekkjarsystkina sinna í öllu – nema latínu. En hann kemst í gegnum námsefnið með aðstoð frá vini sínum, Abraham. Skáldsagan fylgir nokkrum ungum mönnum í gegnum skólagöngu, þeir hafa allir mismunandi hæfileika, eru mis iðnir og bóknám liggur ekki eins fyrir þeim öllum. Eitur kom út á norsku árið 1883 en í íslenskri þýðingu Benedikts Bjarnasonar nokkru síðar. Skáldsagan er sögð vera ádeila á nám og hvernig því er hagað í norskum skólum á 19. öld. Höfundur veltir upp ýmsum spurningum í gegnum frásögnina um skólakerfið og kennsluaðferðir samtíma síns.-
Про автора
Alexander Kielland var eitt helsta skáld Noregs á 19. öldinni. Honum var margt til lista lagt, hann var athafnamaður, bæjarstjóri Stavanger, blaðamaður og ötull stuðningsmaður réttinda verkafólks.
Мова Ісландська ● Формат EPUB ● Сторінки 207 ● ISBN 9788728421116 ● Розмір файлу 0.4 MB ● Перекладач Benedikt Bjarnason ● Видавець SAGA Egmont ● Місто Copenhagen ● Країна DK ● Опубліковано 2023 ● Завантажувані 24 місяців ● Валюта EUR ● Посвідчення особи 8794436 ● Захист від копіювання Соціальний DRM