放大镜
搜索加载器

H.C. Andersen 
Ævintýri og Sögur 

支持
Lítill, ljótur andarungi reynist vera fallegur svanur. Snædrottningin er með ís í hjartanu og litla hafmeyjan þráir að losna við fjötra hreisturs og sporðs og ganga tveimur fótum meðal manna. Ævintýraheimur Hans Christians Andersens er flestum að góðu kunnur. Þó eftir hann liggi bæði skáldsögur, leikrit og ljóð eru það listævintýri hans sem lifa með lesendum, jafnt í bóklegri- og munnlegri geymd. Þó börn séu ötulir lesendur ævintýra höfða sögur H.C. Andersen jafnt til eldri lesenda, sem eru ekki síður færir um að líta milli línanna, sársaukann, þjóðfélagsádeiluna, gleðina og boðskapinn sem þar er að finna. Brugðið er upp mynd af töfrunum í hversdagsleikanum, sem oft er býsna napur í fátæktinni en einnig af sönnum ævintýraheimum, sem leynast undir yfirborðinu. Safnið Ævintýri og sögur geymir 14 af hans fegurstu ævintýrum í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar, sem færði stóran hluta verka Andersens yfir á íslensku. –
€7.99
支付方式

关于作者

H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. Þar blandar hann saman ævintýraminnum munnmælaheimsins og ljúfsárri sköpun sinni svo úr verður hreinn og tær táknheimur sem hægt er að lesa á ýmsa vegu. rn Sögur H.C. Andersens hafa verið færðar í ótal listform, svo sem leikrit, ballett og kvikmyndir.
语言 冰岛的 ● 格式 EPUB ● 网页 276 ● ISBN 9788726237986 ● 文件大小 0.7 MB ● 年龄 17-8 年份 ● 翻译者 Steingrímur Thorsteinsson ● 出版者 SAGA Egmont ● 市 Copenhagen ● 国家 DK ● 发布时间 2020 ● 下载 24 个月 ● 货币 EUR ● ID 7376308 ● 复制保护 社会DRM

来自同一作者的更多电子书 / 编辑

4,405 此类电子书